måndag 11 juni 2012

Staðan eftir 1. umferð riðlakeppninnar

Í kvöld lauk fyrstu umferð riðlakeppninnar með heldur óvæntum sigri Úkraínu á "lilla" Sverige. Það er þó engin þjóðarsorg í Huddinge og öðrum landshlutum enda frekar auðveldir leikir framundan hjá litlu stórþjóðinni.

Keppninn fer vel af stað og sem sem betur er það margt sem kemur þátttakendum í opna skjöldu. Rússar stimpluðu sig inn með 4-1 sigri á Tékkum. Aðeins tveir spáðu að þeir kæmust í úrslitaleikinn. Gauti og Natalía hljóta að hugsa sér gott til glóðarinnar.

Danir sigruðu Hollendinga í góðum leik og galopnuðu með því Dauðariðilinn alræmda. Það yrði áfall fyrir marga ef Hollendingar eða Þjóðverjar kæmust ekki upp úr riðlinum og það gæti jafnvel ráðið úrslitum í getraunakeppninni.

En líklega er það þó hið "nýja" leikkerfi Spánverja sem kemur mest á óvart. Stórkostlegt að spila taktíkina 4-6-0 á stórmóti. Enginn senter og bannað að skora nema að maður komist inn í markteig andstæðingana. Fótbolti án fyrirgjafa! ... þvílík fyrirsögn af hverju er ég ekki í vinnu hjá Séð & heyrt?

Eftir fyrstu umferðina deila Jón Ragnar og Guðrún Björk, sem er mér alls óskyld, efsta sætinu með 24 stig. En það eru margir sem narta í hælana á þeim. Í 3-5. sæti koma svo Kjartan, Snorri Magg og Natalía með 21 stig en meistari síðustu keppni, Ófeigur "hress" Hreinsson lúrir aðeins 6 stigum frá toppnum.

Daði, Fjóla og Ingi Rafn þurfa að bretta upp ermarnar eða biðja til æðri máttarvalda en það er þó knattspyrnuáhugamaðurinn Benedikt G. Waage sem hefur valdið mestu vonbrigðunum hingað til. Sex stig af 48 mögulegum er ekki ásættanlegt fyrir mann af hans kalíberi. Nú er bara að bíta í skjaldarendurnar.


<><><>
1. umferð 1. umferð Stig úr Röð eftir
Úrslit Mörk 1. umferð 1. umferð
Guðrún Björk
   15
   9    24      1
Jón Ragnar Ástþórsson    15    9    24      1
Kjartan    18    3    21      3
Natalía Hallsdóttir    15    6    21      3
Snorri Magnússon    15    6    21      3
Gísli Karel    15    3    18      6
Ófeigur Hreinsson    15    3    18      6
Björn Armando Ásgeir Björnsson do Nascimento    15    3    18      6
Diddi    12    6    18      6
Eggert Thorberg Kjartansson    15    0    15    10
Valdimar Eggertsson    12    3    15    10
Snorri Pétur Eggertsson    12    3    15    10
Styrkár Hallsson    12    3    15    10
Reynir    12    3    15    10
Snorri Sigurðsson Norðdahl      9    6    15    10
Þórdís María Arnarsdóttir    12    0    12    16
Gauti    12    0    12    16
Sigurður Yngvi    12    0    12    16
Jóhann R Guðmundsson    12    0    12    16
Örvar      9    3    12    16
Eggert Þórbergur Gíslason      9    3    12    16
Svandís Jónsdóttir      9    3    12    16
Arnar Már Jóhannesson     9    3    12    16
Anton Már Gylfason     9    3    12    16
Albert Albertsson     9    0      9    25
Ásgeir j gíslason     9    0     9    25
Katrín Ósk Arnarsdóttir     9    0     9    25
Daniel Arnþórsson     9    0     9    25
Viktor Andri     9    0     9    25
Guðrún Sch     9    0     9    25
Jóhanna Björk Snorradóttir     6    3     9    25
Arnþór Guðmundsson     6    3     9    25
Einar Daði Reynisson     6    3     9    25
Kristján Leifsson     6    0     6    34
Hjalti B     6    0     6    34
Svava María     6    0     6    34
Tryggvi Sigurðsson     6    0     6    34
Kristinn Sigurðarson     6    0     6    34
Reynir Jóhannsson     6    0     6    34
Benedikt G. Waage     6    0     6    34
Tómas Haarde     3    3     6    34
Sæunn     3    0     3    42
Ingi Rafn Ólafsson     3    0     3    42
Fjóla María Lárusdóttir     3    0     3    42
Daði Ófeigsson     0    0     0    45

2 kommentarer:

  1. Þetta jaðrar við að vera hneyksli.

    SvaraRadera
    Svar
    1. Já maður á aldrei að þykjast vera betri en maður er !

      Radera