lördag 16 juni 2012

Staðan eftir 2. umferð

Guðrún Björk alveg með þetta og eykur enn forskot sitt á okkur hin getgrönnu (ekki oft sem ég get kallað mig grannan) og hefur nú 9 stiga forskot. Þetta er farið að minna óþægilega mikið á Eurovision, þar sem Svíarnir eru að fljúga fram úr. Skemmtilegt að sjá hve vel giftir the Már Brothers eru og ljóst er að Anton hefur víxlað spám við Fjólu.

Sú títtnefnda Fjóla hefur komið sér upp neðsta sætinu með harðfylgi og leyfir nú litlu mág-frænku sinni, henni Katrínu Ósk, að verma það.

Sá leikur sem fólk hefur verið getskapast í, er leikur Spánverja við frændur vora Íra, hann gaf heil 132 stig, allir nema hin áðurnefna mág-frænka voru með þann leik réttan. Það er gott til þess að vita að einhvern þarna úti hefur trú á lítilmagnanum.

Hástökkvari milli umferða er eftir sem áður Sæunn en moldvarpan er Þórdís María - hin mág-frænka Fjólu.

Spekingarnir hittu oftast á markatöluna í leikjum Hollands og Þýskalands annars vegar og Póllands og Rússlands hins vegar, en markatalan í hvorum leik gaf 27 stig af sér.

Hinsvegar gáfu úrslitin í leik Danmerkur og Hollands fæst stig, 9 stykki og engir höfðu markatöluna í leik Svía og Englendinga rétta.

Hollendingar hafa þá gefið bæði hæstu og lægstu stigin í keppninni með sínum úrvalsleik.

Þá lýk ég þessum pistli úr ranni Hönnu Mæju og Jóa, ætthöfðingja Már's fjölskyldunnar.



2. umferð 2. umferð Alls eftir Röð eftir
Úrslit Mörk 2. umferð 2. umferð
Guðrún Björk 18 9 51 1
Björn Armando 21 3 42 2
Natalía Hallsdóttir 15 6 42 2
Jón Ragnar Ástþórsson 12 6 42 2
Styrkár Hallsson 18 6 39 5
Kjartan 15 0 36 6
Valdimar Eggertsson 15 6 36 6
Svandís Jónsdóttir 15 9 36 6
Snorri Magnússon 9 6 36 6
Eggert Þórbergur Gíslason 18 3 33 10
Guðrún Sch 18 3 30 11
Jóhann R Guðmundsson 15 3 30 11
Gísli Karel 12 0 30 11
Eggert Thorberg Kjartansson 12 3 30 11
Sæunn 21 6 30 11
Einar Daði Reynisson 18 3 30 11
Anton Már Gylfason 15 3 30 11
Gauti 12 6 30 11
Snorri Pétur Eggertsson 12 3 30 11
Reynir 9 6 30 11
Kristinn Sigurðarson 18 3 27 21
Ásgeir j gíslason 15 3 27 21
Arnar Már Jóhannesson 15 0 27 21
Ófeigur Hreinsson 9 0 27 21
Albert Albertsson 12 6 27 21
Snorri Sigurðsson Norðdahl 12 0 27 21
Diddi 9 0 27 21
Tryggvi Sigurðsson 18 0 24 28
Reynir Jóhannsson 18 0 24 28
Ingi Rafn Ólafsson 18 3 24 28
Hjalti B 15 3 24 28
Benedikt G. Waage 15 3 24 28
Örvar 12 0 24 28
Sigurður Yngvi 9 3 24 28
Jóhanna Björk Snorradóttir 12 3 24 28
Daniel Arnþórsson 12 0 21 36
Viktor Andri 9 3 21 36
Daði Ófeigsson 15 6 21 36
Kristján Leifsson 12 0 18 39
Arnþór Guðmundsson 9 0 18 39
Fjóla María Lárusdóttir 12 0 15 41
Þórdís María Arnarsdóttir 3 0 15 41
Tómas Haarde 9 0 15 41
Svava María 6 3 15 41
Katrín Ósk Arnarsdóttir 3 0 12 45



Inga kommentarer:

Skicka en kommentar